Áramótahlaupaannáll 2018

Þetta hlaupaár varð heldur endasleppt og þróaðist með öðrum hætti en ég hefði viljað. Keppnishlaupin á árinu voru ekki nema 6 í heildina, 5 maraþon og Hvítasunnuhlaup Hauka. Ég stefndi á að hlaupa gott hlaup í Mendoza í Argentínu í vor og var markmiðið að fara amk undir 3:15 og helst undir 3:10. Æfingar gengu vel og ekkert sem átti að vera því til fyrirstöðu. Ég átti ágætt æfingahlaup í Barcelona í mars sem gaf góð fyrirheit þrátt fyrir að ég hafi fengið krampa í rasskinn sem hægði á mér. Þegar til kom þá fannst mér ég hins vegar vera kraftlaus og ég var sérstaklega óánægður með síðustu 10 km en oft hef ég verið hlutfallslega sterkur á þeim kafla. Það hins vegar gerðist ekki í þetta skiptið og ég var að missa fram úr mér óþarflega marga hlaupara. En svona er þetta bara, tíminn rúmlega 3:23 klst sem er ekki svo slæmt.

Ég skellti mér í Hvítasunnuhlaup Hauka í fyrsta sinn og fór þar lengstu leiðina. Ég var þungur á mér en skrifaði það á að of stutt hefði verið frá hlaupinu í Mendoza. Þriðja maraþon ársins var í Þórshöfn í Færeyjum. Það var bráðskemmtileg upplifun. Brautin er erfið með mörgum löngum brekkum. Mér gekk hins vegar ágætlega þar því ég hljóp fyrri hlutann rólega með Þóru minni sem var að hlaupa hálft maraþon. Síðari hlutann hljóp ég heldur hraðar en þar sem markmiðið var að vera rétt undir 4 klst. reyndist þetta hlaup mér ekki svo erfitt.

Ég var skráður í Laugaveginn þannig að ég tók til við að reyna að hlaupa upp Esjuna og önnur smærri fell og hæðir. Eftir því sem æfingunum fjölgaði versnaði úthaldið. Það er að sjálfsögðu ekki eðlilegt enda kom í ljós að ég var að falla í blóðgildum eða hemóglóbíni. En frá því að ég greindist með hvítblæðið um árið hafa mín blóðgildi oftast legið í kringum 120 en talað er um að meðalgildi fyrir karla sé 135 - 175 g pr l. Þetta skiptir máli því hemóglóbínið hefur það hlutverk að binda súrefni og flytja það til vefjanna þar sem það er losað og nýtt við orkumyndun.

Vikurnar fyrir Laugaveginn mældist hemóglóbínið 114 g pr.l og það er einfaldlega of lítið til að geta unnið almennilega í brekkunum. Ég ákvað því að hætta við að hlaupa Laugaveginn því ég var alls ekki viss um að ég myndi ná tímamörkum til að geta klárað hlaupið.

Ég lét mig hafa það að hlaupa Reykjavíkurmaraþonið og kláraði það á rétt undir 3:50 klst. Þar var ég ágætur uppí ca 25 km en næstu 10 km þar á eftir voru verulega erfiðir og mig langaði mest til að hætta. En við 35 km markið var eins og ég kæmist yfir baslið þannig að ég gat notið þess að hlaupa síðustu 7 km þokkalega.

Þar sem ég var skráður í Lissabon maraþonið um miðjan október var ekki annað að gera en að reyna að halda áfram æfingum. Ég náði 4 löngum æfingum frá Reykjavíkurmaraþoninu og að Lissabon hlaupinu. Þær æfingar voru frekar skrautlegar því þótt ég hlypi ekki nema á næstum 6 pace þá þurfti ég að stoppa og hvíla mig á 4 - 7 km fresti. Á einni æfingunni datt ég tvisvar úr takti en hrökk aftur í takt eftir smá hvíld. Það var því viðbúið að Lissabon hlaupið gæti orðið erfitt. En þegar til kom gat ég hlaupið það á 5:24 pace og það án þess að stoppa til að hvíla mig og mér leið bara ágætlega í hlaupinu allan tímann. Þegar upp er staðið tel ég þetta vera eitt af mínum betri hlaupum á ferlinum þótt tíminn bendi ekki til þess.

En þetta blessaða blóðleysi hefur sannarlega áhrif. Í síðustu mælingu var hemóglóbínið komið í 106 g pr. l og ég finn það vel á sjálfum mér. Á fimmtudag á milli hátíða í fyrra hljóp ég 15 km á 4:20 pace. Á fimmtudegi milli hátíða í ár hljóp ég 11 km á 5:30 pace – og þurfti svo sannarlega að hafa fyrir því. Það má því segja að sennilega hefur hægst á mér um rúmlega eina til tvær mínútu pr. km. á árinu.

Það skiptir svo sem ekki öllu máli svo fremi sem ég get hlaupið áfram.

Ég ætla á gamlársdag að hlaupa í gamlárshlaupi ÍR 10 km. Með því hlaupi rýf ég 2.600 km múrinn í ár og hef notað til þess 175 æfingar, að meðtöldum keppnum, og rúmlega 240 klst. Samtals eru því km í árslok 32.469,3 síðan ég hóf að hlaupa skipulega á afmælisdaginn minn þann 10. apríl 2008. Ef ég næ að hlaupa svipað magn næstu þrjú árin þá ætti ég að ljúka við hringinn í kringum hnöttinn ef miða er við miðbaugslínu (40.075 km) í lok árs 2021. Það er gott markmið.

Að baki eru nú 38 maraþon í 17 löndum, 11 höfuðborgum og 6 heimsálfum.

Markmið næsta árs eru númer eitt að geta hlaupið áfram. Viðbótarmarkmið er að klára 7. heimsálfuna í mars nk. á Suðurskautinu. Þá er stefnan á maraþon í Madagascar eða Mauritius í byrjun sumars þannig að Þóra nái að klára sína 7. heimsálfu þar. Ég stefni á Reykjavíkurmaraþonið og er markmiðið þar að hlaupa með karli föður mínum og reyna að aðstoða hann við að komast undir 5 klst. á 70 ára afmælisárinu. Að lokum er stefnan sett á lystisemdarhlaup í Medoc í september þar sem markmiðið verður að hlaupa eins hægt og leyfilegt er og njóta þess sem verður boðið uppá á drykkjarstöðvunum!

Þetta eru vissulega nokkuð sérstæð tímamót. Að vera aftur staddur á sama stað og fyrir 13 árum með afar óljósa hugmynd um hvernig sjúkdómurinn kemur til með að þróast á næstu mánuðum. En síðast tókst vel til þannig að það er góð von til þess að það gerist aftur.

Gleðilegt nýtt hlaupaár!


Um sjálfhverfur - eða klikkað samfélag?

Sjálfhverfur fjölmiðlamanna og annarra.

Einn býr til frétt um hversu margir erlendir fjölmiðlar fjalla um hörmulegt slys á Íslandi. Hvað skyldu vera mörg klikk í því?

Annar býr til frétt um gagnrýni heilbrigðisstarfsmanns á birtingu fjölmiðla á myndum af slysstað þar sem þrír látast. Sá sem tók myndirnar er fyrrverandi starfsmaður fjölmiðils. Sá sem spyr vill fá svar við því hvar mörkin eiga að liggja. Upplýsingaskylda fjölmiðla vs. friðhelgi einstaklinga og þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks. Það sem um er fjallað gerist nánast í rauntíma með myndum. Hvað eru mörg klikk í því?

Marvin fer á stjá og þjóðin tekur andköf í kjölfarið. Marvin ákveður að stíga undan dulnefninu þegar ljóst er hvernig vindar blása. Marvin, Marvin, Marvin. Hver er Marvin? Hvað eru mörg klikk í því? Hvað verður um Marvin? Hver ætlar að passa Marvin? Um hvað snérist aftur málið? Hvað gerist í næsta þætti? Hvað eru mörg klikk í því?

Sjálfskipaðir álitsgjafar og besservisserar á fésbókinni hneykslast endalaust á því þegar aðrir eru annarrar skoðunar en þeir sjálfir og viðhlæjendur jeta það upp í kór með viðeigandi orðbragði. Það fást mörg klikk úr því.

Hvað eða hver býr til virka í athugasemdum? Þar eru mörg klikk.

Hvað orsakar allt þetta klikk hjá einni þjóð? Fortíðarþrá eftir heykvíslum, tjöru og fiðri? Það var sko klikk.

Er það kannski stjórnarskráin sem er klikk? Fylgjendur nýrrar stjórnarskrár telja að minnsta kosti margir hina vera klikk.

Sennilega eigum við þetta öll skilið þar sem við búum þetta til. Sem er klikk.

Einn af fáum sem er ekki klikk er Theobald Þráins Bertelssonar og hann fær mitt klikk.


Valkvæð túlkun ákvæða Stjórnarskrár

Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þróun umræðunnar um Klausturmálið eftir að Marvin ákvað að upplýsa þjóðina um hver stæði að baki því dulnefni. Sérstaklega hefur mér fundist fróðlegt að fylgjast með ummælum sumra þeirra sem komu að gerð nýrrar stjórnarskrár og fylgismanna þeirra.

Eins og ég hef skilið málflutning þeirra þá hefur mér heyrst þeirra helsta gagnrýni, amk að hluta, snúa að því að þeir telji núgildandi stjórnarskrá ekki vernda borgarana með fullnægjandi hætti. Þeir eru að sjálfsögðu frjálsir þessarar skoðunar sinnar. En í þessu ljósi kemur það mér á óvart að þeir hinir sömu skuli þá ekki vilja framfylgja ákvæðum gildandi stjórnarskrár um vernd borgaranna þegar þau ákvæði eru brotin. Þeim til málsbótar má þó væntanlega segja að í Klaustursmálinu eru atvik um margt öfgakennd og auðvelt að missa þráðinn í tilfinningahita tengdu því máli. Það breytir þó ekki því að flest hljótum við að vilja að leikreglum réttarríkisins sé fylgt en ekki að það sé valið úr eftir hentisemi hvenær ber að fara eftir lögum og hvenær ekki. Því ef slík aðferðafræði fær brautargengi skiptir í raun ekki öllu máli hvað segir í Stjórnarskránni hverju sinni.

Ég er ekki í nokkrum vafa um að upptakan á Klausturbar var ólögmæt. Til að komast að þeirri niðurstöðu er nóg að líta til greinargerðar með 9. gr. l. nr. 97/1995 sem breytti friðhelgisákvæði Stjórnarskrárinnar. Greinargerðin öll er áhugaverð aflestrar og sýnir að stjórnarskrárgjafinn vildi á þessum tíma víkka verulega út þágildandi ákvæði um friðhelgi einkalífsins. Eftirfarandi ummæli stjórnarskrárgjafans taka af öll tvímæli:

Með því að setja fram beina reglu um friðhelgi einkalífsins í 1. mgr. 9. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að skylda hvíli á ríkinu til að forðast afskipti af einkalífi manna og persónulegum högum. Þetta er þó ekki nægilegt til þess að menn fái í reynd notið friðhelgi einkalífs því hættan á að slík friðhelgi sé rofin stafar ekki eingöngu frá ríkinu, heldur einnig frá öðrum einstaklingum og einkaaðilum. Af þessum sökum felur krafan um friðhelgi einkalífs ekki eingöngu í sér að ríkið gangi ekki á þennan rétt, heldur einnig að því sé skylt að setja reglur í löggjöf til verndar einstaklingunum í innbyrðis samskiptum þeirra. Á það einkanlega við um skyldu til að þessum réttindum einstaklinganna sé að vissu marki veitt vernd með ákvæðum refsilaga sem gera brot annarra einstaklinga á þessum réttindum refsiverð. Skyldur ríkisins í þessum efnum eru þó ekki bundnar við að veita refsivernd, heldur má einnig nefna í þessu sambandi skyldur ríkisins til að binda í löggjöf skýrar reglur um öflun, skráningu og meðferð persónuupplýsinga hvort sem um er að ræða meðferð stjórnvalda eða einkaaðila á upplýsingunum og að einstaklingur eigi rétt til aðgangs að upplýsingum um sjálfan sig. Má segja að þörf á ákveðnum reglum um þetta svið hafi aukist mjög á undanförnum áratugum samhliða ört vaxandi tækni við öflun og meðferð persónuupplýsinga. Við þessu hefur verið brugðist í íslenskri löggjöf með setningu laga um meðferð og skráningu persónuupplýsinga, nr. 121/1989, - nú lög nr. 90/2018 - þar sem skýrar reglur koma fram um þessi efni og eftirlit með framkvæmd laganna er falið sérstakri nefnd, tölvunefnd. Fleiri atriði falla tvímælalaust undir vernd einkalífs þótt þau séu ekki sérstaklega orðuð í 1. mgr. 9. gr. frumvarpsins, svo sem réttur manna til trúnaðarsamskipta við aðra. Á þetta fyrst og fremst við um margs konar tjáskipti milli manna sem ekki er gerlegt að telja hér með tæmandi hætti, en nærtækustu dæmin eru þó bréfaskipti og tjáskipti augliti til auglitis eða í síma, svo og orðaskipti í símskeytum, skjölum sem fara um myndsendi og önnur slík fjarskipti.

Í ofangreindri umfjöllun stjórnarskrárgjafans eru engir einstaklingar undanþegnir, hvorki stjórnmálamenn né aðrir. Þá er verndin ekki takmörkuð við staði sem ekki teljast opinberir. Það er hins vegar annað mál að ef fjölmiðlar fá upplýsingar í hendur sem fengnar eru með ólögmætum getur önnur regla gripið inn í, sem er tjáningarfrelsisákvæði Stjórnarskrárinnar, sem veitir fjölmiðlum ríkari heimildir en öðrum til að birta upplýsingar sem þeir komast yfir.

Eins sannfærður og ég er um að upptakan hafi verið ólögmæt þá er ég jafn sannfærður um að fjölmiðlum var heimilt að birta upptökuna, eða amk hluta hennar, eins og hér stóð á. En það svarar ekki spurningunni um hvernig skuli meðhöndla mál uppljóstrarans. Ef uppljóstrarinn stígur ekki fram eða finnst með öðrum hætti reynir ekki á ábyrgð hans og þar með þarf ekki að skoða þennan anga málsins frekar. Uppljóstrarinn getur vel haft málefnalegar ástæður fyrir uppljóstrun sinni, t.d. óttast að yfirvöld aðhafist ekkert og mögulega svæfi mál. En hvað skal gera þegar það upplýsist hver uppljóstrarinn er?

Á það að fara eftir því hver uppljóstrarinn er? Eða á það að fara eftir því hverju er uppljóstrað? Eða hverjir það eru sem í hlut eiga sem verið er uppljóstra einhverju um? Eða einhverju öðru, t.d. skoðanakönnun á netinu? Eigum við kannski að láta einstökum blaðamönnum eða ritstjórnum fjölmiðla að ákveða þetta? Eða valinkunnum álitsgjöfum?

Sem betur fer þurfum við ekki að velta þessu fyrir okkur með þessum hætti. Stjórnarskrárgjafinn hefur tekið af öll tvímæli með því að kveða á um að ríkinu beri að vernda borgarana. M.a með því að kveða á um að stjórnarskrárvörðum réttindum skuli veita vernd með ákvæðum refsilaga sem gera brot annarra einstaklinga á þessum réttindum refsiverð og jafnframt hvernig skuli fara með öflun, skráningu og meðferð persónuupplýsinga.

Það er ríkisvaldsins að framfylgja því eftir bestu getu að borgararnir fari að þeim lögum sem í landinu gilda. Ef grunur vaknar um refsivert athæfi ber ríkisvaldinu að rannsaka málið. Í því samhengi eiga allir að vera jafnir fyrir lögunum og það á ekki að fara eftir því hvort við höfum samúð með meintum brotamanni eða hvort við höfum óbeit á honum. Né heldur hverjar afleiðingarnar eru af brotinu.

Ef ríkisvaldið rannsakar ekki og saksækir eftir atvikum uppljóstrara, sem skýrir frá stjórnarskrárvörðum einkamálefnum annars manns eða manna, þá eigum við á hættu að allir geti alltaf átt það á hættu að vera hljóðritaðir og að það sé háð mati einstakra blaðamanna eða ritstjórna hvað teljist eiga erindi við almenning og hvað ekki. Telji einstaklingur á sér brotið er takmörkuð vörn í því þótt dómstólar komist löngu seinna að þeirri niðurstöðu að svo hafi verið þegar það sem leynt átti að fara hefur verið gert opinbert. Slíkt ástand gæti reynst kappsömum erfið freisting að standast til að búa til fréttir eða komast í fréttir.

Það er einnig vert að hafa í huga að telji einstaklingur sig verða vitni að fyrirhuguðu lögbroti eða fá upplýsingar um þegar framið lögbrot hefur sá hinn sami alltaf þann kost að upplýsa yfirvöld um málið, sé hann ekki bundinn sérstakri þagnarskyldu, án sérstakra afleiðinga fyrir hann sjálfan.

höf. er stundakennari við læknadeild HÍ um þagnarskylduákvæði.


Um bloggið

Gunnar Ármannsson

Höfundur

Gunnar Ármannsson
Gunnar Ármannsson

Áhugamaður

Des. 2018
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • New Image 23

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband